Múmínálfarnir
audiobook
(0)
Ævintýri Með Múmínsnáðanum 1
by Tove Jansson
read by Vaka Vigfúsdóttir
Part 1 of the Múmínálfarnir series
Fylgstu með lífi múmínsnáðans, fjölskyldu hans og vina, allar fjórar árstíðirnar! Hér segir frá fyrsta vordeginum, þegar Snúður kemur til baka úr vetrarferðalaginu sínu, og björtum sumarnóttum þegar múmínsnáðinn leysir ráðgátu. Við upplifum litadýrð haustins, en þá finna múmínsnáðinn og Snabbi flöskuskeyti og leggja af stað í leiðangur í leit að nýjum vini. Loks kynnumst við myrkum frosthörkum vetrarins þegar múmínálfarnir liggja í dvala og bíða eftir því að sólin láti aftur sjá sig.Komdu með í ferðalag í friðsælan og tímalausan heim múmínálfanna þar sem múmínsnáðinn, múmínpabbi og múmínmamma lenda í ótal spennandi ævintýrum ásamt vinum sínum snorkstelpunni, Snabba, Míu litlu, Snúði, Pjakki, Fillífjonkunni og öllum hinum. Til hvaða undraheima skyldu þau ferðast næst og hvaða ævintýraverur hitta múmínsnáðinn og vinir hans á leiðinni?
audiobook
(0)
Vintýri með múmínsnáðanum 2
by Tove Jansson
read by Vaka Vigfúsdóttir
Part 2 of the Múmínálfarnir series
Múmínsnáðinn, vinir hans og fjölskylda leggja upp í nýjar ævintýraferðir. Hér lærir múmínsnáðinn um vináttu, að deila með öðrum, fyrirgefningu og hugrekki. Í einni sögunni týnir múmínsnáðinn dýrmætum sjónauka og verður að finna hann aftur áður en það er um seinan. Í annarri fara vinirnir út í eyðieyju í leit að söng hafsins. Í þeirri þriðju finnur múmínsnáðinn einstakan fjársjóð: perlu sem er á litinn eins og miðnæturtunglið. Komdu með og upplifðu allar hinar sögurnar sem eiga sér stað í múmíndalnum.Komdu með í ferðalag í friðsælan og tímalausan heim múmínálfanna þar sem múmínsnáðinn, múmínpabbi og múmínmamma lenda í ótal spennandi ævintýrum ásamt vinum sínum snorkstelpunni, Snabba, Míu litlu, Snúði, Pjakki, Fillífjonkunni og öllum hinum. Til hvaða undraheima skyldu þau ferðast næst og hvaða ævintýraverur hitta múmínsnáðinn og vinir hans á leiðinni?
audiobook
(0)
Leynilöggur í Múmíndal
by Tove Jansson
read by Vaka Vigfúsdóttir
Part of the Múmínálfarnir series
Fylgist með múmínsnáðanum og vinum hans leika leynilöggur og takast á við ýmsar ráðgátur: Hvert leiðir dularfulla rauða slóðin okkur? Hver stal hálsfesti frú Fillífjonku? Hvað varð um frímerki hemúlsins? Og hvað í ósköpunum kom eiginlega fyrir allan farangurinn í ferðatösku frænkunnar?Komdu með í ferðalag í friðsælan og tímalausan heim múmínálfanna þar sem múmínsnáðinn, múmínpabbi og múmínmamma lenda í ótal spennandi ævintýrum ásamt vinum sínum snorkstelpunni, Snabba, Míu litlu, Snúði, Pjakki, Fillífjonkunni og öllum hinum.Til hvaða undraheima skyldu þau ferðast næst og hvaða ævintýraverur hitta múmínsnáðinn og vinir hans á leiðinni?
audiobook
(0)
Hér Kemur Mía Litla
by Tove Jansson
read by Vaka Vigfúsdóttir
Part of the Múmínálfarnir series
Mía litla er sannkallaður eldibrandur; þó hún sé lítil er hún áköf, klár og hugrökk. Hún er einn af bestu vinum múmínsnáðans. Mía litla vill sjálf fá að ráða ferðinni og eitthvað spennandi á sér stað hvert sem hún kemur. Það er varla hægt að hugsa sér betri ferðafélaga í ævintýraleiðangur en í þetta sinn snýst ævintýrið um Míu litlu sjálfa!Komdu með í ferðalag í friðsælan og tímalausan heim múmínálfanna þar sem múmínsnáðinn, múmínpabbi og múmínmamma lenda í ótal spennandi ævintýrum ásamt vinum sínum snorkstelpunni, Snabba, Míu litlu, Snúði, Pjakki, Fillífjonkunni og öllum hinum.Til hvaða undraheima skyldu þau ferðast næst og hvaða ævintýraverur hitta múmínsnáðinn og vinir hans á leiðinni?
Showing 1 to 4 of 4 results