Kalviðir
audiobook
(0)
Kalviðir: Rússneskir flóttamenn
by Davíð Þorvaldsson
read by Kristjan Franklin Magnus
Part 1 of the Kalviðir series
Sagan á sér stað dag einn á krá í París þar sem flóttmenn frá Rússlandi koma saman. Einn þeirra er unglingurinn Pavlovitsh, en lesandi fær að skyggnast inn í hugarheim hans og fylgjast með því þegar hann rifjar upp fangavist sína og deilur hans við föður sinn, sem er á leið til Parísar en Pavlovitsh reynir að ákveða hvort hann vilji hitta hann á ný.-
audiobook
(0)
Einmana sálir
by Davíð Þorvaldsson
read by Kristjan Franklin Magnus
Part 2 of the Kalviðir series
Sagan fjallar um systurnar Helgu og Maríu sem búa einar við bág kjör og vonda heilsu í íslensku sjávarþorpi. Þær systur eru mjög ólíkar, Helga er fögur og gáfuð á meðan Maríu er lýst sem hlédrægri og tilfinninganæmri. Helga á son, Andrés, sem er búsettur erlendis og hefur ekki komið heim í mörg ár. Þegar María lætur lífið, er Helga ein eftir og hugsar mikið til Andrésar sem verður frelsari hennar þar sem hún hugsar til hans sem baráttumanns hins góða í heiminum. Þegar Andrés snýr loksins heim taka við honum óvæntar breytingar.-
audiobook
(0)
Kalviðir: Blómasalinn
by Davíð Þorvaldsson
read by Kristjan Franklin Magnus
Part 3 of the Kalviðir series
Munaðarlaus systkini eyða dögum sínum við að selja blóm í París til þess að lifa af. Einn daginn verður kemur bróðirinn auga á fallega og ríka stúlku sem hann verður ástfanginn af, en þegar hann reynir að gefa henni blómvönd brestur eitthvað í sál litla blómasalans.-
audiobook
(0)
Hans Bókhaldari
by Davíð Þorvaldsson
read by Kristjan Franklin Magnus
Part 4 of the Kalviðir series
Hans bókhaldari er feiminn og miðaldra íslenskur karlmaður sem býr einn í litlu leiguherbergi. Hann hefur aldrei verið við konu kenndur en ákveður svo einn daginn að hann langi til þess að biðla konu og við tekur ófyrirsjáanleg atburðarrás.-
audiobook
(0)
Pólski málarinn
by Davíð Þorvaldsson
read by Kristjan Franklin Magnus
Part 5 of the Kalviðir series
Á sjúkrahúsi í París liggur pólskur málari sem berst fyrir lífi sínu. Læknir þekkir verk málarans og veit að hann varð aldrei auðugur af listinni, sem verður til þess að hann fer að velta fyrir sér lífinu sjálfu og tilgangi þess.-
audiobook
(0)
Kalviðir: Ekkert
by Davíð Þorvaldsson
read by Kristján Franklín Magnús
Part 6 of the Kalviðir series
Mathilde og Jean eru elskendur sem búa við Miðjarðarhafið og fjallar sagan um samband þeirra, hvernig það hófst og hvernig það endaði sem og áhrif á tilfinningalíf parsins.-
audiobook
(0)
Kalviðir: Ljettfeti
by Davíð Þorvaldsson
read by Kristjan Franklin Magnus
Part 7 of the Kalviðir series
Hér segir frá íslenskum hest sem hafði verið seldur til Belgíu en fær þar heimþrá og strýkur til þess að komast aftur heim. Á leiðinni örgmagnast hann og þar sem hann liggur byrjar hann að eiga samræður við sál borgarinnar Brügge.-
audiobook
(0)
Kalviðir: Smásagnasafn
by Davíð Þorvaldsson
read by Kristjan Franklin Magnus
Part of the Kalviðir series
Kalviðir samanstendur af sjö sögum: Rússneskir flóttamenn, Einmana sálir, Blómasalinn, Hans bókhaldari, Pólski málarinn, Ekkert og Ljettfeti. Bókin er sögð vera skrifuð út frá reynslu og tilfinningum Davíðs, sem missti móður sína þegar hann bjó í Frakklandi og afleiðingarnar sem því fylgdu. Sögurnar eru grípandi og eiga sér sér stað í Frakklandi, Belgíu, við Miðjarðarhaf og á Íslandi og segja frá persónum sem lýst er með fallegum, tilfinningaríkum skrifum.-
Showing 1 to 8 of 8 results