AUDIOBOOK

About

Frederica Hammond flytur til frænku sinnar í notalegt þorp í Wiltshire-sýslu eftir að móðir hennar ferst í hryllilegu slysi. Þar eignast hún fljótt vinkonur, unir sér vel og verður ástfangin af Crispin St. Aubyn. En skjótt skipast veður í lofti og fyrr en varir áttar Frederica sig á því að í þorpinu er margt flóknara en það virðist við fyrstu sýn. Grimmileg leyndarmál koma í ljós hvert á fætur öðru og leiða Fredericu og vinkonu hennar yfir hálfan hnöttinn í leit að svörum.
Spennandi saga um ungar ástir, vináttu og svik. Það er ekki af ástæðulausu að Victoria Holt hefur verið kölluð drottning ástarsagnanna. Hér sýnir hún og sannar að hún er sérfræðingur í því að vefa saman ástinni og leyndarmálum, fjölskylduerjum og ævintýralegum söguþræði.

Related Subjects

Extended Details

Artists

Similar Artists