Gönguferð
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Settu á þig bakpokann og haltu af stað eftir löngum, krókóttum malarstígnum. Vindurinn blæs í trjátoppunum, fuglar syngja og í fjarska heyrir þú í kúabjöllun klingja. Þú gengur framhjá læk og á meðan heyrist í bakpokann hristast mjúklega - sem verður að náttúrulegum takti sem fylgir skrefum þínum um landslagið.
Slökun - Frí Á Ítalíu
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Njóttu ferðalags um ítalskt þorp. Byrjaðu á veitingastað þar sem þú getur fengið þér smá hressingu. Síðan heimsækirðu kirkju á meðan á guðsþjónustu stendur. Þú yfirgefur kirkjuna til að ganga í gegnum borgargarðinn við hliðina á klaustri, þar sem þú getur heyrt munkana syngja. Leyfðu flökkuþránni að taka yfir og finndu andann léttast.
Slökun - Rigning
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Slakaðu á með náttúruhljóðum.Vindurinn blæs fyrir utan gluggann og það hvín í trjánum. Rigninging slær taktfast á þakið og í fjarska heyrast drunur í þrumum. Innandyra er hlýtt og notalegt og lætin í veðrinu hafa róandi áhrif á þig.Rannsóknir hafa leitt í ljós að náttúruhljóð geta haft bæði slakandi og örvandi áhrif á heilann. Saga Sounds er samansafn af þægilegum og fjölbreyttum hljóðum sem þú getur notið þess að hlusta á þegar þú ætlar að slaka á, vilt ná betri einbeitingu eða vantar hjálp við svefn. Þessi sérhannaði hljóðheimur skapar róandi andrúsloft, einnig þekkt sem "ambience", sem þú getur notið hvar og hvenær sem er. Saga Sounds er samansafn þægilegra og fjölbreyttra hljóða sem þú getur notið þess að hlusta á þegar þú ætlar að slaka á, vilt ná betri einbeitingu eða vantar hjálp við svefn.
Slökun - Kanósigling
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Dragðu úr stressi með náttúruhljóðum!
Komdu í kanóferð. Þú róar mjúklega niður lækinn sem er umkringdur fallegasta græna landslaginu. Fuglar kvaka í trjánum, skordýr suða og vatnið skvettist mjúklega þegar þú róar.
Slökun - við höfnina
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Verið velkomin á höfnina þar sem fiskibátarnir leggja af stað til að koma með daglegan afla. Fáðu þér sæti og njóttu hljóðanna af starfandi sjómönnum, mávakallsins og vatnsins sem skvettist við bryggjuna.
Slökun - Geimstöð
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Hvernig hljómar geimurinn? Upplifðu næturvakt í geimstöðinni – heyrðu hvernig vélarnar raula með útreikningum sínum, ratsjáin hringir og andrúmsloftið er algjörlega ótruflað.
Slökun - Hestaferð
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Farðu í ferðalag með hestvagni og leyfðu friðsælu landslaginu að reka framhjá þegar þú lokar augunum og nýtur hljóðsins í fuglunum, hestunum og opnum veginum.
Slökun - Arineldur
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Slakaðu á með náttúruhljóðum. Það snarkar í arninum og frá eldinum leggur þægilegan yl um stofuna. Antík úrið tifar og kötturinn teygir makindalega úr sér á gólfinu. Þú situr í þægilegum og mjúkum hægindastól og horfir á logana dansa í arninum. Rannsóknir hafa leitt í ljós að náttúruhljóð geta haft bæði slakandi og örvandi áhrif á heilann. Saga Sounds er samansafn þægilegra og fjölbreyttra hljóða sem þú getur notið þess að hlusta á þegar þú ætlar að slaka á, vilt ná betri einbeitingu eða vantar hjálp við svefn. Þessi sérhannaði hljóðheimur skapar róandi andrúsloft, einnig þekkt sem "ambience", sem þú getur notið hvar og hvenær sem er. Saga Sounds er samansafn þægilegra og fjölbreyttra hljóða sem þú getur notið þess að hlusta á þegar þú ætlar að slaka á, vilt ná betri einbeitingu eða vantar hjálp við svefn.
Slökun - Lestarferð
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Velkomin um borð! Þessi hljóðheimur fylgir ferðlagi frá lestarpallinum til áfangastaðar. Gakktu um borð og láttu þér líða vel í sætinu þínu. Taktfast suð lestarinnar er fullkomið þegar þú vilt loka augunum og slaka á.
Slökun - Undir Sjónum
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Klæddu þig í froskalappirnar og settu á þig súrefnisgrímuna, kafaðu í sjóinn og njóttu þess að reka um á rólegum hraða undir vatninu. Fjörugir höfrungar gefa frá sér smellhljóð þegar þeir synda framhjá og gríman þín myndar örsmáar málmhljómandi loftbólur sem rísa upp að yfirborðinu. Þú gætir jafnvel heyrt hvalasöng frá hinum blíðu risum hafsins.
Slökun - Zen
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Finndu innri frið með hugleiðslutónlist sem gerir þér kleift að ná ró. Söngskálar, mjúkir tónar og afslöppuð tónlist hjálpar þér að slaka algjörlega á. Dragðu djúpt andann og slepptu allri spennu og streitu.
Slökun - Í Skóginum
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Slakaðu á með náttúruhljóðum.Sólin skín á milli trjátoppanna sem hreyfast lítillega í golunni. Fuglarnir syngja og í fjarska heyrist ljúfur lækjaniður. Þú nýtur þín í kyrrðinni og hlustar á notalega hljóma náttúrunnar. Rannsóknir hafa leitt í ljós að náttúruhljóð geta haft bæði slakandi og örvandi áhrif á heilann. Saga Sounds er samansafn þægilegra og fjölbreyttra hljóða sem þú getur notið þess að hlusta á þegar þú ætlar að slaka á, vilt ná betri einbeitingu eða vantar hjálp við svefn. Þessi sérhannaði hljóðheimur skapar róandi andrúsloft, einnig þekkt sem "ambience", sem þú getur notið hvar og hvenær sem er. Saga Sounds er samansafn þægilegra og fjölbreyttra hljóða sem þú getur notið þess að hlusta á þegar þú ætlar að slaka á, vilt ná betri einbeitingu eða vantar hjálp við svefn.
Slökun - Suðræn Strönd
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Ímyndaðu þér að þú sért liggjandi á strönd í hitabeltinu. Öldur skella mjúklega yfir fínan hvítan sandinn. Framandi fuglar kvaka í bakgrunni og þú finnur fyrir hlýju sólargeislunum á húðinni. Þú opnar bók til að lesa og færð þér kaldan drykk með ísmolum sem klingja við glasið. Öðru hvoru heyrirðu hljóma í tónlistinni frá strandbarnum og söngtifurnar raula í pálmatrjánum.
Slökun - Regnskógur
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Skordýr suða, fuglar syngja og apar hrópa hver til annars. Regnskógurinn er þéttur af dýra- og plöntulífi. Þó að dýrin séu að tala saman er andrúmsloftið algjörlega rólegt. Þú ert umkringdur þykkri og hlýri þoku, háum trjám og dúnmjúkum skógarbotni. Hér getur þú slakað fullkomlega á.
Slökun - Afslöppun Heima
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Hlýlegasti hljóðheimurinn. Ímyndaðu þér að þú sért heima. Glugginn er opinn og það er dálítil rigning úti. Nágranni þinn er að æfa sig á píanó og tónarnir flæða inn í herbergið þitt. Þú býrð til heitan drykk, tekur upp bók og kúrar uppi í sófa undir notalegu teppi, nú ertu tilbúinn að slaka á.
Slökun - Skíði
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Ímyndaðu þér skíðaferð í undurfallegum vetri. Það heyrist marr í snjónum undir stígvélunum þínum, skíðin renna taktfast í gegnum snjóinn og þú finnur nánast fyrir fersku köldu loftinu á kinnunum. Snjóþung furutrén umkringja þig og það er eins og umheimurinn sé sofandi.
Slökun - Vindasöm Sjávarsíða
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Öldurnar skella yfir fæturna á þér þegar þú röltir meðfram vatnsbrúninni í gönguferð við sjávarsíðuna. Hvassviðrið kitlar í eyrun á meðan mávar og aðrir vaðfuglar spjalla og syngja og öðru hvoru siglir fiskibátur framhjá út á sjó.
Slökun - Bókasafn
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Verið velkomin á bókasafnið þar sem er notalegt og rólegt andrúmsloft. Hér er fullkomið að vera fyrir djúpa og einbeitta vinnu. Lág hljóð af blaðsíðum sem verið er að fletta, fjarlæg hvísl og mjúkt fótatak skapa notalegan og afkastamikinn hljóðheim.
Slökun - þrumuveður
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Rigning slær taktfast á þakið, það er stutt á milli gnýs þrumanna og eldingarna sem birtast jafnóðum. Þú finnur fyrir öryggi og hlýju fyrir framan brakandi arin.
Nótt í skóginum
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Kyrrlát nótt í skóginum leggst yfir í kringum þig. Það snarkar í varðeldinum og neistarnir dansa í myrkrinu á meðan uglur og næturfuglar kvaka í fjarska. Léttur vindur sveiflast um trjátoppana og taktur söngtifanna myndar bakgrunn næturinnar. Þegar eldurinn slokknar hægt og rólega byrjar kyrrlátt regn að falla mjúklega á tjaldið. Sannköllið hljóðupplifun sem fangar kyrrð náttúrunnar og nærveru næturinnar.
Hljóðheimur þegar þú þarft ró fyrir svefninn
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Slakaðu á með náttúruhljóðum.
Við róum mjúklega niður lækinn á kanó sem er umkringdur fallegasta græna landslaginu. Fuglar kvaka í trjánum, skordýr suða og vatnið skvettist mjúklega þegar þú róar. Því næst köfum við í sjóinn og njótum þess að reka um á rólegum hraða undir vatninu. Fjörugir höfrungar gefa frá sér smellhljóð þegar þeir synda framhjá og gríman þín myndar örsmáar málmhljómandi loftbólur sem rísa upp að yfirborðinu. Við komum upp úr í skóginum þar sem sólin skín á milli trjátoppanna sem hreyfast lítillega í golunni. Þú nýtur þín í kyrrðinni og hlustar á notalega hljóma náttúrunnar. Rigningin byrjar að falla og þú ert umkringdur þykkri og hlýri þoku, háum trjám og dúnmjúkum skógarbotni. Við endum heima þar sem vindurinn blæs fyrir utan gluggann og það hvín í trjánum. Rigninging slær taktfast á þakið og í fjarska heyrast drunur í þrumum. Innandyra er hlýtt og notalegt og lætin í veðrinu hafa róandi áhrif á þig. Hér getur þú slakað fullkomlega á og sofnað værum svefni.
Bíltúr um Evrópu
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Afslappandi ferðalag í bíl um Evrópu, séð - og heyrt- úr farþegasætinu. Róleg hljóð úr umferðinni á opnum vegi - allt frá mjúku suði í vélinni til veghljóðs á malbiki og hellum. Öðru hvoru blæs smá vindur í gegnum opna gluggana á meðan höggdeyfar bílsins draga mjúklega úr ójöfnum á veginum. Í bakgrunni heyrist dauft brak í útvarpinu ásamt umferðartilkynningum, GPS-rödd leiðbeinir þér rólega og að lokum byrja regndropar á tromma á framrúðunni.
Kvöldstund á svölunum
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Það er hlýtt sumarkvöld og þú situr úti á svölunum. Suðandi skordýr fylla loftið, á meðan lágvær samtöl frá næsta húsi blandast við hljóðin frá ísmolunum sem klingja í glerinu. Vindurinn kviður blíðlega í kyrrlátri golunni og róleg umferð fangar tilfinninguna sem fylgir því að sitja úti þegar dagurinn breytist hægt og rólega í nótt.
Góður draumur
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Láttu hugann reika í blíðlegt draumaástand. Þú heyrir hljóðlegt hófatak í fjarska, á meðan vindur og vatn fléttast saman í róandi mynstri. Í bakgrunninum heyrist afslappandi tónlist sem skapar hlýlegt og öruggt andrúmsloft sem hjálpar þér að ná slökun fyrir góðan nætursvefn.
Hljóðheimur þegar þú þarft að einbeita þér
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Verið velkomin í andrúmsloft sem er fullkomið fyrir djúpa og einbeitta vinnu.
Við byrjum á bókasafninu þar sem þú heyrir lág hljóð í blaðsíðum sem verið er að fletta, fjarlæg hvísl og mjúkt fótatak skapa notlegan og afkastamikinn hljóðheim. Við tekur næturvakt í geimstöðinni, þar sem vélarnar raula og ratsjáin hringir. Því næst stígum við um borð í lest þar sem þú getur látið þér líða vel í sætinu þínu. Ferðlagið heldur áfram í hestvagni í friðsælu landslagi, þar sem við heyrum í fuglunum og opnum veginum. Ferðinni er heitið í skíðaferð í undurfallegum vetri, það heyrist marr í sjónum og þú finnur nánast fyrir fersku köldu loftinu á kinnunum. Við endum við arineldinn, þar sem við heyrum í snarkinu og antík úrinu tifa, þar sem þú getur einbeitt þér einstaklega vel í þæginlegum yl frá eldinum.
Hljóðheimur þegar þú vilt slaka á
by Rasmus Broe
read by Rasmus Broe
Part of the Saga Sounds (Icelandic) series
Dragðu djúpt andann og slepptu allri spennu og streitu.
Finndu innri frið með hljóðheimum sem gera þér kleift að ná ró. Við byrjum á söngskálum og mjúkum tónum sem hjálpa þér að slaka algjörlega á. Síðan færum við okkur yfir á suðræna strönd. Ímyndaðu þér að þú sért liggjandi á strönd í hitabeltinu, þú heyrir í öldunum skella á sandinn og í söngtifunum raula í pálmatrjánum. Við njótum svo ferðalags um ítalskt þorp, leyfðu flökkuþránni að taka yfir og finndu andann léttast. Höfnin tekur við okkur og við tökum okkur sæti og njótum hljóðanna af mávakalli og vatnsins sem skvettist við bryggjuna. Að lokum förum við heim, í hlýlegasta hljóðheiminum. Glugginn er opinn og það er dálítil rigning úti, nú ert tilbúinn að slaka á.